Framundan eru líklega mest spennandi bæjarstjórnarkosningar á Seltjarnarnesi í áratugi. Vinstri flokkarnir ganga sameinaðir til kosninga á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fær nú í fyrsta sinn samkeppni frá Miðflokknum.
Fyrir átta árum, árið 2018, mátti litlu muna að borgaralegt framboð, Fyrir Seltjarnarnes, felldi fjórða mann Sjálfstæðisflokksins. Þá hvatti Sjálfstæðisflokkurinn eigin kjósendur til útstrikana á hluta forystumanna flokksins í stað þess að kjósa nýja valkostinn.
Ef aðeins 13 atkvæði hefðu færst frá D-lista yfir á F-lista hefði meirihlutinn fallið. Á endanum hélt Bjarni Álfþórsson sæti sínu sem fjórði maður á lista Sjálfstæðisflokksins, en gekk síðar til liðs við Samfylkinguna. Það er því eðlilegt að spyrja hvort vörnin hafi verið af hinu góða fyrir borgaraleg öfl. Á sama tíma voru tvö framboð vinstri manna í kjöri; Viðreisn og Neslistinn annars vegar og Samfylkingin hins vegar.
Fjórum árum síðar, árið 2022, voru þrír listar í kjöri; Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og Framtíð, framboð Karls Péturs Jónssonar. Sjálfstæðisflokkurinn hélt þá meirihluta sínum með 50,1% atkvæða, Samfylkingin fékk 40,8% og þrjá bæjarfulltrúa kjörna, en Framtíð hlaut rúm 9% atkvæða án þess að ná manni inn.
Af framangreindu má sjá að líklegt er að meirihluti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi falli nú í fyrsta sinn, spurningin er fyrst og fremst hvernig ný staða mun líta út. Ef Miðflokkurinn nær manni inn, sem líklega krefst um 15% atkvæða, eru litlar líkur á að Sjálfstæðisflokkurinn haldi fjórum fulltrúum sínum. Ef Miðflokkurinn nær ekki manni inn, er hætt við að vinstri flokkarnir nái meirihluta með mun lægra fylgi, líkt og gerðist árið 2018 þegar Sjálfstæðisflokkurinn hélt meirihluta með 46,3% atkvæða.
Ljóst er að sú varnarbarátta sem dugði Sjálfstæðisflokknum árið 2018 mun ekki duga að þessu sinni. Ef íbúar Seltjarnarness vilja áfram meirihluta borgaralegra afla er mikilvægt að Miðflokkurinn fái nægilegt fylgi til að tryggja sér fulltrúa í bæjarstjórn. Miðað við viðbrögð og þróun kosningabaráttunnar standa litlar líkur til þess að svo verði ekki, líklegra má telja að fulltrúarnir verði tveir eða fleiri.
Það hefur vakið athygli í þessari kosningabaráttu hversu mörg af helstu áherslumálum Miðflokksins hafa ratað inn í málflutning annarra framboða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur meðal annars tekið upp hugmyndir um heimgreiðslur til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, á meðan Samfylkingin hefur lagt áherslu á lækkun vatns- og fráveitugjalda og einnig ámálgað heimgreiðslur á fundi Foreldrafélags leikskólans.
Því miður hafa svo einhverjir forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins látið ganga rangfærslur um að Miðflokkurinn hyggist skera niður framlög til Gróttu og jafnvel kirkjunnar. Hvort tveggja er ósatt, en þegar rökin þrýtur er gripið til örþrifaráða.
Miðflokkurinn hefur skýra sýn á framtíð Seltjarnarness. Sú sýn felur ekki í sér fjárútlát vegna Borgarlínu eða Fossvogsbrúar, né heldur baðlón við strendur Seltjarnarness eða háreistar byggingar við Eiðistorg og á horni Norður- og Suðurstrandar.
Okkar sýn byggir á faglegum vinnubrögðum, ábyrgri meðferð fjármuna og virðingu fyrir skattfé bæjarbúa. Sveitarstjórnarstigið snýst fyrst og fremst um nærumhverfið okkar og daglegt líf fólksins sem hér býr. Þar teljum við mestu skipta að vinna af ábyrgð, hlusta á íbúa og láta verkin tala.
Tækifærið er núna – kjósum XM
Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins á Seltjarnarnesi