Á hjúkrunarheimilinu Seltjörn hefur Vigdísarholt um árabil rekið dagdvöl fyrir allt að 24 einstaklinga. Þar hefur farið fram markviss og metnaðarfull endurhæfing og sérhæfð þjónusta, meðal annars fyrir fólk með heilabilun. Starfsemin hefur skilað raunverulegum árangri; hún hefur styrkt þátttakendur andlega, líkamlega og félagslega sem gerir þeim kleift að búa lengur heima og viðhalda þeim lífsgæðum sem þau sjálf kjósa í stað þess að flytjast á hjúkrunarheimili.
Í lok síðasta árs tók Seltjarnarnesbær þá ákvörðun að segja upp leigusamningi við Vigdísarholt um húsnæðið þar sem dagdvölin er rekin. Jafnframt var samningi um rekstur níu dagdvalarrýma sagt upp. Afleiðingin er sú að Vigdísarholt hefur ekki lengur aðstöðu til að halda starfseminni áfram á Seltjarnarnesi.
Ef dagdvöl verður rekin áfram á vegum bæjarins er ljóst að hún mun eingöngu ná til níu einstaklinga, þar sem samningar við Sjúkratryggingar Íslands nær ekki til fleiri rýma. Það þýðir verulega skerðingu frá þeim 24 rýmum sem áður stóðu til boða. Hvaða þjónustu eiga hinir 15 að fá og hverja á að velja hverjir fá þjónustuna áfram?
Þessi ákvörðun mun hafa raunveruleg áhrif. Færri komast að, biðlistar myndast og þrýstingur á aðra þjónustu eykst. Hingað til hefur ekki verið biðlisti fyrir íbúa Seltjarnarness í dagdvöl á Seltjörn — sú staða er nú í uppnámi.
Á sama tíma vakna spurningar sem ekki hafa fengist skýr svör við:
- Á að reka dagdvöl fyrir níu einstaklinga í húsnæði sem rúmar 24?
- Stendur til að nýta rýmið með öðrum hætti eða fela öðrum rekstraraðilum það?
- Hefur þjónustuþegunum eða aðstandendum þeirra verið gert grein fyrir því hvert stefnir með þessari uppsögn?
- Hver er langtímastefna bæjarins í þjónustu við eldri íbúa Seltjarnarness, þá sem hafa lagt sitt af mörkum til að byggja upp okkar ágæta samfélag?
Þá er einnig ljóst að húsnæðið sjálft er ekki vandamálið. Fasteignafélagið Summa á eignina og bærinn er bundinn af langtímaleigusamningi. Ákvörðunin snýst því ekki um skort á aðstöðu heldur um forgangsröðun og þá sýn sem sveitafélagið hefur á þjónustu við eldri íbúa bæjarins.
Þegar þjónusta sem hefur reynst vel er skert með þessum hætti er eðlilegt að spyrja: Á hverjum bitnar skert þjónusta? Hverjir bera kostnaðinn? Svarið er einfalt — það eru eldri borgarar og aðstandendur þeirra.
Dagdvöl er ekki aukaatriði. Hún er lykilþáttur í að viðhalda sjálfstæði, lífsgæðum og öryggi og við á lista Miðflokksins á Seltjarnarnesi viljum standa vörð um þjónustu við eldri borgara og sættum okkur ekki við skref aftur á bak.
Höfundur er Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir sem skipar 5. sæti á lista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi.