Category Archives: Greinar og fréttir

Takk fyrir stuðninginn

Miðflokkurinn á Seltjarnarnesi bauð fram í fyrsta sinn og uppskar 14,5% atkvæða og einn mann í bæjarstjórn. Frábær árangur sem byggði á sterkum, samhentum hópi frambjóðenda, mikilli vinnu og málefnalegri kosningabaráttu. Nú tekur við vinna í bæjarstjórn og í nefndum við að koma málefnum okkar og sjónarmiðum á framfæri og um leið upplýsa bæjarbúa um […]

Meirihlutinn fellur, en hver verður sigurvegarinn ?

Framundan eru líklega mest spennandi bæjarstjórnarkosningar á Seltjarnarnesi í áratugi. Vinstri flokkarnir ganga sameinaðir til kosninga á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fær nú í fyrsta sinn samkeppni frá Miðflokknum. Fyrir átta árum, árið 2018, mátti litlu muna að borgaralegt framboð, Fyrir Seltjarnarnes, felldi fjórða mann Sjálfstæðisflokksins. Þá hvatti Sjálfstæðisflokkurinn eigin kjósendur til útstrikana á hluta forystumanna flokksins […]

Nesvagninn

Umræða um almenningssamgöngur hefur staðið yfir árum saman. Oft er bent á að nýtingin sé lítil, að kerfið henti barnafjölskyldum illa og að reksturinn sé kostnaðarsamur. Þetta eru allt gild sjónarmið, en spurningin er hvort hægt sé að gera betur. Markmið okkar í Miðflokknum á Seltjarnarnesi er einfalt: Að skapa almenningssamgöngur sem nýtast raunverulega íbúum […]

Tugir milljóna í vaskinn – Ójafnræði og óhagkvæmni í leikskólamálum á Seltjarnarnesi

Eitt sinn var ég stoltur Seltirningur. Ég var stolt af því að búa í sveitarfélagi sem þótti standa vel að málefnum barnafjölskyldna. Ef barn komst ekki inn á leikskóla voru önnur úrræði í boði. Staða leikskólamála á Seltjarnarnesi er nú sú að börn komast almennt ekki inn á leikskóla fyrr en eftir tveggja ára aldur. […]

Dagdvöl á Seltjörn – skerðing á þjónustu við eldri borgara

Á hjúkrunarheimilinu Seltjörn hefur Vigdísarholt um árabil rekið dagdvöl fyrir allt að 24 einstaklinga. Þar hefur farið fram markviss og metnaðarfull endurhæfing og sérhæfð þjónusta, meðal annars fyrir fólk með heilabilun. Starfsemin hefur skilað raunverulegum árangri; hún hefur styrkt þátttakendur andlega, líkamlega og félagslega sem gerir þeim kleift að búa lengur heima og viðhalda þeim […]

Vá af völdum sjávar!

Seltjarnarnes er umvafið sjó á alla kanta og því eru okkur sjóvarnir mikilvægar. Sjóvarnir hafa ekki fengið næga athygli síðustu ár. Við seltirningar urðum óþæginlega vör við þá krafta sem við búum í nágrenni við fyrir rúmu ári síðan (mars 2025) þegar óveður og ágangur sjávar stórskemmdi hér göngustíga og flóðvarnir. Þar kom berlega í […]

Er kominn tími til að endurskoða álagningu fasteignagjalda á Seltjarnarnesi?

Fasteignagjöld hafa hækkað verulega á Seltjarnarnesi undanfarin ár og þar vega vatns- og fráveitugjöld þyngra en margir gera sér grein fyrir. Er jafnvel kominn tími til að endurskoða álagningarprósenturnar? Fasteignagjöld á Seltjarnarnesi hafa hækkað verulega á undanförnum árum og verða sífellt þyngri byrði fyrir fasteignaeigendur. Þrátt fyrir að álagningarprósenta hafi verið lækkuð þá hefur heildarálagning […]