Reynslumikill oddviti snýr aftur í framboð með áherslu á hagsmuni bæjarbúa

Skafti Harðarson leiðir lista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi í komandi sveitarstjórnarkosningum, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í bænum. Skafti er þó ekki nýr í bæjarmálunum, en hann leiddi áður lista „Fyrir Seltjarnarnes“ í kosningunum árið 2018 sem hlaut rúmlega tíu prósent atkvæða.

Í samtali við Valdimar Tryggva Kristófersson hjá Nespóstinum ræðir Skafti um ástæður framboðsins, stöðu bæjarins og hvaða breytingar hann telur nauðsynlegar til framtíðar.

Skafti er fæddur árið 1956 og hefur sterk tengsl við Seltjarnarnes, þar sem hann ólst upp að hluta og hefur á ný búið síðustu ár. ,,Á Seltjarnarnesi býr einnig stór hluti nánustu fjöldskyldu minnar; bæði systkini mín, móðir mín, önnur dóttir mín ásamt maka og fjórum barnabörnum. Þá hef ég verið í Nesklúbbnum í yfir aldarfjórðung og það eru forréttindi að fá að stunda golf í nærumhverfinu á einum fegursta stað höfuðborgarsvæðisins. Haf og fjallasýn umkringir þessa náttúruperlu þar sem golfarar og krían athafna sig í sátt og samlyndi,“ segir hann, en Skafti hefur starfað lengi í einkarekstri á sviði byggingariðnaðar og verið virkur í félags- og hagsmunastarfi, meðal annars sem formaður Samtaka skattgreiðenda frá stofnun þess. Þá hefur hann einnig komið að pólitísku starfi um árabil.

Full ástæða til að fara fram aftur
Þú hefur áður boðið fram lista á Seltjarnarnesi. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara aftur í framboð, nú undir merkjum Miðflokksins og óháðra? ,,Fyrir átta árum bauð hópur fólks fram með óháð framboð, sem aðeins skorti tæp 20 atkvæði til að ná árangri. Við buðum fram undir kjörörðinu „Grunnþjónusta í stað gæluverkefna”, sem fékk þennan góða hljómgrunn. Í kjölfarið sáum við ýmislegt fara til betri vegar, en þó ekki nóg. Því er nú full ástæða til að fara fram aftur og ná að fella núverandi meirihluta að hleypa fleirum að stjórn bæjarins,“ segir Skafti.

Miðflokkurinn býður nú fram í fyrsta sinn á Seltjarnarnesi. Hver eru helstu markmið ykkar og á hvaða forsendum fer listinn fram? ,,Við förum nú fram með nokkur málefni, sem við teljum öðrum ofar; að gera góðan bæ betri og vísar það til skilvirkni í stjórnsýslu og ráðdeild í rekstri, að ekki verði teknar afdrifaríkar ákvarðandi í skipulagsmálum eða þéttingu byggðar án fulls samráð við íbúa og að það megi alveg sjá á eftir fjármagni í að fegra bæinn og sinna viðhaldi gatna og umhverfis, sem hefur verið verulega ábótavant,“ segi hann

Mikið verk enn fyrir hendi við að taka til í fjármálunum
Hvernig metur þú stöðuna á Seltjarnarnesi í dag, bæði hvað varðar fjármál, þjónustu og þróun bæjarins undanfarin ár? ,,Margt er vel gert á Nesinu. Skóla- og íþróttastarf er með nokkrum blóma og heilsukjarninn með íþróttahúsunum, World Class og sundlauginni eru eins konar miðstöð bæjarins. Fjármálin ber þess merki að á tímabili virtist bæjarstjórn telja sig alla vegi færa í fjármálum og alls konar gæluverkefni fóru af stað. Að hluta, fyrir góðra manna tilstilli í bæjarstjórn hefur verið undið ofan af þessu, en mikið verk er enn fyrir hendi við að taka til í fjármálunum. Þá er viðhald og þjónusta ekki með þeim hætti sem bæjarbúar óska eða eiga skilið. Þróun bæjarins hefur verið með þokkalegasta hætti. Þannig er ný byggð næst Gróttu lágreist og ber keim af þeirri byggða sem fyrir er og er það gott. Stórkarlalegar hugmyndir um uppbyggingu í eða við miðbæjarkjarnann þarf að skoða vel og koma í veg fyrir að breyti ásýnd bæjarins,“ segir Skafti.

Gæta þarf vel að jafnræði íbúanna í öllum ákvörðunum
Hverjar verða helstu áherslur ykkar í komandi kosningabaráttu og hvaða breytingar viljið þið sjá á næsta kjörtímabili? ,,Áherslan er á ráðdeild í rekstri og að allt bókhald bæjarins verði opnað og aðgengilegt. Að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og gæta vel að jafnræði íbúanna í öllum ákvörðunum; á það hefur verulega skort. Að sinna kerfisbundið viðhaldi gatna og gangstíga ásamt því að gera bæinn blómlegri í bókstaflegum skilningi. Það á að vera metnaður okkar allra að bera bæinn okkar ekki aðeins góðan stað til að búa á, heldur frábæran.“

Afmælisbarnið eldist vel
Seltjarnarnes fagnar 52 ára afmæli fimmtudaginn 9. apríl sl. Hvernig finnst þér „afmælisbarnið“ hafa elst og dafnað og er gott að búa á Seltjarnarnesi, framtíðin björt? ,,Afmælisbarnið eldist vel og það er, og verður, gott að búa á Seltjarnarnesi. En við þurfum að bera til gæfu til að fara ekki leið vinstri flokkanna í Reykjavík; að skattleggja allt í drep, þétta byggð langt umfram óskir íbúa og margfalda óskilvirka stjórnsýslu. Að því sögðu er framtíðin björt og hvergi betra að búa,“ segir Skafti að lokum.

Viðtal við Skafta í Nespóstinum
11. apríl 2026