Takk fyrir stuðninginn

Miðflokkurinn á Seltjarnarnesi bauð fram í fyrsta sinn og uppskar 14,5% atkvæða og einn mann í bæjarstjórn. Frábær árangur sem byggði á sterkum, samhentum hópi frambjóðenda, mikilli vinnu og málefnalegri kosningabaráttu. Nú tekur við vinna í bæjarstjórn og í nefndum við að koma málefnum okkar og sjónarmiðum á framfæri og um leið upplýsa bæjarbúa um hvað er í gangi hverju sinni.

Við þökkum Samfylkingu, Viðreisn og óháðum drengilega baráttu og óskum Sjálfstæðismönnum til hamingju með árangur þeirra. Við hlökkum til að starfa að framgangi góðra mála innan bæjarfélagsins næstu fjögur árin.