Seltjarnarnes er umvafið sjó á alla kanta og því eru okkur sjóvarnir mikilvægar. Sjóvarnir hafa ekki fengið næga athygli síðustu ár. Við seltirningar urðum óþæginlega vör við þá krafta sem við búum í nágrenni við fyrir rúmu ári síðan (mars 2025) þegar óveður og ágangur sjávar stórskemmdi hér göngustíga og flóðvarnir. Þar kom berlega í ljós hversu illa við erum í raun varin og að við búum að vissu leiti við falskt öryggi frá þessum ógnvænlegu kröftum sem býr í sjónum.
Hvað hefur verið gert til að tryggja stöðu nessins og okkar sem hér búum? Eina skýrsla sem hægt er að finna er frá árinu 2011. Hún er yfirlitsskýrsla um sjóvarnir sem gefin var út af Siglingamálastofnun. En þar kemur meðal annars fram:
Ölduálag og flóðahætta:
Ölduálag er mikið við norðurströnd Seltjarnarness frá Eiðsgranda að Gróttu. Vestan og sunnan á nesinu er minna álag, hólmar og sker skýla nokkuð vestanmegin og úthafsaldan nær ekki inn með suðurströndinni.
Flóðahætta er talsverð þar sem Seltjarnarnesið er lágt og umlukið sjó á alla vegu nema við bæjarmörk að austan. Á suðurströndinni er hætta á flóðum frá bæjarmörkum við Sörlaskjól vestur undir Melhúsabryggju. Þar flæddi síðast í hús við Nesveg árið 1997.
Af þessu má vera ljóst er að komið er að því að endurskoða stöðu sjóvarna við Seltjarnarnes og þá sérstaklega þau svæði sem í þessari skýrslu eru talin í meiri hættu en önnur. Svæðin við suðurströndina frá Sörlaskjóli og að Melhúsabryggju eru það lág að í flóðum sem hafa komið hér á suðvesturhorni landsins á sögulegum tíma líkt og Básendaflóðið , 9. Janúar 1799, geta valdið hér verulegu tjóni. Í því óveðri sem þá geysaði náði sjór 230 cm hærra upp á land en sé miðað við hæstu stöðu stórstraums. Það er ógnvænleg mynd að sjá fyrir sér og setur stöðu lágsvæða Seltjarnarness í nýtt samhengi. Meðfylgjandi mynd sýnir hvernig lægstu svæðin gætu orðið fyrir áhrifum af slíkum viðburði og því nauðsynlegt að við bregðumst við og tryggjum okkur gegn slíku áfalli.
Við í Miðflokki munum óska eftir því að samtalið verði hafið við Vegagerðina og unnið verði markvist í því að tryggja að svæði sem liggi lægst verði varin sem best. Að gera ekki neitt til að tryggja stöðu nessins er óábyrgt. Tækifærið er núna að gera breytingar.
Hákon Jónsson skipar 6. sæti á lista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi.
