Author Archives: admin

Tugir milljóna í vaskinn – Ójafnræði og óhagkvæmni í leikskólamálum á Seltjarnarnesi

Eitt sinn var ég stoltur Seltirningur. Ég var stolt af því að búa í sveitarfélagi sem þótti standa vel að málefnum barnafjölskyldna. Ef barn komst ekki inn á leikskóla voru önnur úrræði í boði. Staða leikskólamála á Seltjarnarnesi er nú sú að börn komast almennt ekki inn á leikskóla fyrr en eftir tveggja ára aldur. […]

Dagdvöl á Seltjörn – skerðing á þjónustu við eldri borgara

Á hjúkrunarheimilinu Seltjörn hefur Vigdísarholt um árabil rekið dagdvöl fyrir allt að 24 einstaklinga. Þar hefur farið fram markviss og metnaðarfull endurhæfing og sérhæfð þjónusta, meðal annars fyrir fólk með heilabilun. Starfsemin hefur skilað raunverulegum árangri; hún hefur styrkt þátttakendur andlega, líkamlega og félagslega sem gerir þeim kleift að búa lengur heima og viðhalda þeim […]

Vá af völdum sjávar!

Seltjarnarnes er umvafið sjó á alla kanta og því eru okkur sjóvarnir mikilvægar. Sjóvarnir hafa ekki fengið næga athygli síðustu ár. Við seltirningar urðum óþæginlega vör við þá krafta sem við búum í nágrenni við fyrir rúmu ári síðan (mars 2025) þegar óveður og ágangur sjávar stórskemmdi hér göngustíga og flóðvarnir. Þar kom berlega í […]

Er kominn tími til að endurskoða álagningu fasteignagjalda á Seltjarnarnesi?

Fasteignagjöld hafa hækkað verulega á Seltjarnarnesi undanfarin ár og þar vega vatns- og fráveitugjöld þyngra en margir gera sér grein fyrir. Er jafnvel kominn tími til að endurskoða álagningarprósenturnar? Fasteignagjöld á Seltjarnarnesi hafa hækkað verulega á undanförnum árum og verða sífellt þyngri byrði fyrir fasteignaeigendur. Þrátt fyrir að álagningarprósenta hafi verið lækkuð þá hefur heildarálagning […]

Reynslumikill oddviti snýr aftur í framboð með áherslu á hagsmuni bæjarbúa

Skafti Harðarson leiðir lista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi í komandi sveitarstjórnarkosningum, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í bænum. Skafti er þó ekki nýr í bæjarmálunum, en hann leiddi áður lista „Fyrir Seltjarnarnes“ í kosningunum árið 2018 sem hlaut rúmlega tíu prósent atkvæða. Í samtali við Valdimar Tryggva Kristófersson hjá […]

Gerum góðan bæ betri

Nú liggur ljóst fyrir hvaða valkostir bjóðast íbúum Seltjarnarness í sveitarstjórnakosningum í vor. Í fyrsta sinn verður nú Miðflokkurinn, ásamt óháðum, með framboðslista. Liggur þá fyrir að bæjarbúum gefast þrír valkostir; Sjálfstæðisflokkurinn sem stýrt hefur bæjarfélaginu frá stofnun þess; Samfylking, Viðreisn og óháðir, en gott er að sjá að á Seltjarnarnesi er horfst í augu […]